Við hjónaleysin ætlum að skella okkur til Köden í byrjun júní og skilja guttann eftir hjá afa og ömmu á meðan. Ég er að fara í annað skiptið á þessu ári þangað, skellti mér í feb með múttu og ísak en nú ætla ég að draga elmar með mér, en hann hefur aldrei komið þangað og alveg tími til þar sem sonur hans kom þangað á undan honum. Við erum bæði farinn að telja niður dagana í herlegheitinn en á dagskránni er leti leti og meiri leti, búðarráp og góður matur. Við ætlum semsagt að fara í dekurferð þar sem við munum sofa út ( það er lengur en til hálfátta, en ísak sefur svo lengi á tillidögum annars er það venjulega hálf sjö) vá ég fæ bara vellíðunar hroll við að hugsa um það og svo verður góður maturog eflaust kíkt út á lífið með Sóley og Jesper. Við ætlum svo auðvitað að kíkja í einhverjar búðir og eyða einhvejum peningum. Þetta er í fjórða skiptið sem ég kem til köben en ég hef aldrei komið þar að sumri til svo ég fæ nú tækiæri til að kíkja í Tívolíið og sjá köben í sumarskrúða. Endilega commentið um hvað við eigum að gera ef þið vitið um eitthvað skemmtilegt til að skoða eða góða veitingastaði. Við erum með í huga að fara strikið, tívolíið, nyhavn, fields mollið, kannski til christianíu, veit að Reef´n Beef er góður resturant... en eins og ég segi endilega komið með uppástungur... hej hej
23. maí 2008 klukkan 20:39
Heiða Sigþórsdóttir 1 athugasemd
Já ég er enn á lífi, hef ekkert skrifað núna í hva... rúmt hálft ár og veit ekki einu sinni hvort einhver sé að skoða síðuna enn, en það kemur í ljós.... annars skrifa ég bara fyrir sjálfa mig. Það var nóg að gera hjá mér á laugardaginn í sósíallífinu, ég byrjaði á því að fara í barnaafmæli til Villa Kára og við Ísak stoppuðum þar í klukkutíma, eða öllu heldur ég stoppaði í klukkutíma en Íska var eftir því hann ætlaði að gista hjá mömmu og pabba og þau tóku hann því heim. Ég fór þá í afmælið til Fanneyjar sem var þrítug skvísan og var með boð milli 5 og 7. Þar á eftir hélt ég heim á leið því ég var með matarboð um kvöldið ( Bryndís, Vala og Gunna á samt mökum komu). Þegar ég kom heim kl hálf átta var Elmar sem átti að vera heima að læra undir próf ( þess vegna fékk hann slepp passan í afmælin) en hann var steinsofandi og vaknaði myglaður og úrillur aðeins hálftíma áður en gestirnir áttu að láta sjá sig og við vorum ekki byrjuð að hafa til matinn eða neitt. En þetta slapp alveg fyrir horn og reddaðist bara ágætlega held ég, maturinn var alveg ágætur- tek það fram að elmar sá um hann, þ.e hann sá um kjúllann- blandaði saman 3 dósum og inn í ofn en ég sá um meðlætið. Litla krúttið sefur bara núna dagblundinn sinn, vonandi er hann að komast í rithma aftur eftir veikindinn sín svo ég geti fengið smá líf aftur og pásur þegar hann sefur :)því þótt hann sé yndislegur þá er hann alveg handfull og ég þigg pásur með þökkum. Jæja þar til næst... hvenær sem það verður......
05. maí 2008 klukkan 14:20
Heiða Sigþórsdóttir 2 athugasemdir
J á það má með sanni segja að móðurhlutverkið sé alveg full time jobb og jafnvel meira til því það fer allur manns tími í að hugsa um ungviðið. Manni hættir til að hugsa um sjálfa sig sem annað en milking machine en það er eiginlega aðal hlutverk mitt þessa dagana og það að reyna að lappa upp á útlitið eða klæða sig upp.... gleyma því... En ekki misskilja mig þetta er æðislegt og það besta sem... hvað á maður að segja, lendir í... það er ekki rétt orðað ,heldur besta gjöf sem maður getur fengið. Og ég er enn að furða mig á þvi að við höfum getað skapað svo fullkomna veru og það án þessa að leggja neitt of mikið á okkur við það. En engillinn okkar er orðin rétt tæplega 3 vikna og ég er orðin einstæð móðir, svona allavega virka daga en elmar kemur í bæinn um helgar til að fá smá frí frá skólabókunum og taka þátt í bleijuskiptum og andvökunóttum. En ég verð að segja að ég hafði ekki gert mér grein fyrir því hve mikð maður þarf að sinna þessum elskum, ég hef auðvitað heyrt að þetta sé mikil vinna en ég held að maður geri sér ekki grein fyrir hve mikil fyrr en á reynir og við foreldrarnir vorum einmitt að tala um að orðið þreytt fær alveg nýja merkingu. Jæja það verður örugglega bið á næsta bloggi frá mér því allur minn tími fer nú í litla ungann ( verðum að fara að ákveða nafn) og allt snýst í kringum hann og ég ætla að vera dugleg við að segja inn myndir á barnanet, vá hvað maður verður sneðjulegur, ég sem ætlaði ekki að verða ein þessara óþolandi mamma sem talar ekki um annað en barnið sitt en ég er ansi hrædd um að ég eigi eftir að verða svoleiðis, því þetta er svo æðislegt barn sem ég á og allt er svo æðislegt í kringum hann :) svo sorry þið þarna úti sem þurfið að hlusta á mig......
24. október 2007 klukkan 15:19
Heiða Sigþórsdóttir 1 athugasemd
Svoldið skrýtið að vera að vinna síðasta vinnudaginn fyrir fæðingarorlof núna og vera að ganga frá. Ég er búin að vera hér á hverjum degi í svo langan tíma, jú jú ég hef nú farið í eitthvað frí en þetta er svo langur tími, éger svona að taka allt mitt persónulega héðan og ganga frá mínu dóti sem er alltaf svoldið skrýtið,svona eins og endi á einhverju sem er alltaf svoldið erfiður, ég fæ alltaf svoldinn söknuð við svona breytingar. En ég er alveg viss um að ég eigi lítið eftir að spá í það á næstu mánuðum.
07. september 2007 klukkan 10:59
Heiða Sigþórsdóttir 2 athugasemdir
Já samkvæmt ljósunni í gær þá er gaurinn bara orðin ready til að koma í heiminn og surprise surprise þá er þetta stór og myndardrengur (skv. ljósunni). En ekki við öðru að búast þar sem við foreldrarnir erum nú enginn smápeð, en ég tek það fram samt að þetta er ekkert tröllabarn bara stór og myndardrengur sem er tilbúin að koma í heiminn hvenær sem er ( því fyrr því betra- því biðin getur verið svo löng). En það er allt gott að frétta af okkur og snýst orðið allt um litla erfingjann sem við bíðum spennt eftir. Elmar er nú samt að fara í skólan núna á næsta mánudag svo það verður erfitt að horfa á eftir honum síðustu vikurnar þegar mest reynir á og ég þarfnast mest þjóns til að stjana við mig en ég á góða að sem hlaupa í skarðið er ég viss um. Reyndar er ég farinn að vorkenna honum meira en mér því hann þarf að vera einn þarna upp frá og setja sig í námið og vera í hlaupaskónum því maður veit jú aldrei hvenær þetta brestur á. Hann ætlar jú held ég að skella sér í lax um helgina til að veiða björg í bú eða eins og hann segir til að láta stoppa upp á veggin því hann er fullviss um að hann veiði einn stóran í Blöndu. Jæja best að skella sér úr í frískandi rigninguna og kannski bara fara í gögnu upp bið rauðavatn, enda tími til komin ég hef ekkert labbað þarna um í hverfinu mínu...... þar til næst......
29. ágúst 2007 klukkan 13:10
Heiða Sigþórsdóttir 2 athugasemdir
Já ég held að það megi með sönnu líkja mér við blöðrufisk þessa dagana, því andlitið á mér er orðið svo bólgið af bjúg að ég fer að lítast þessu skrýtna fyrirbæri æ meir, mér til mikillar "gleði" , en gleðin er hjá elmari því hann hlær af mér og þá sérstaklega þegar ég leggst á koddan því þá verð ég öll krumpuð með sílikon varir. Ég væri svosöm alveg til í varirnar, hver vill ekki stórar og kissulegar varir en það er restin af þessu sem er að bögga mig, púffý augu og undirhakan. En þetta er víst bara einn af aukaverkunum meðgöngu og ég get svosöm ekki kvartað enda hefur allt gengið í sögu hingað til og þó ég sé ljót og bólgin í einn til tvo mánuði þá er það nú þess virði þegar upp er staðið held ég
adios
24. ágúst 2007 klukkan 11:06
Heiða Sigþórsdóttir 6 athugasemdir
Já í gær var 21.ágúst sem þýðir að það er aðeins einn mánuður eftir af þessari meðgöngu, það er ef ég geng ekki fram yfir eins og tíðkast víst oft með fyrsta barn. En ég er farin að hlakka svoldið mikið til að fá prinsinn í heiminn og eins líka að klára þesa meðgöngu. Það er satt sem þær segja með að síðsasti mánuðurinn er erfiðastur því hingað til hefur allt gengið eins og í sögu og það er aðeins núna sem þetta er farið að hrjá mann, þyngd og fyrirferð umtalsvert meiri en venjulega svo auðvitað hlýtur maður að finna fyrir því. Hreiðrunarhvötin er líka farin að segja til sín og ég er búin að þvo og raða fötunum hans í skápinn, rúmið er fundið en mútta er að sauma á það dúllerý og ég held að þá sé ég bara orðin nokkuð vel sett, jú auðvitað er bílstóllinn líka á sínum stað. Ég held ég sé svona minimalisti hvað varðar þetta barnadót, því ég nenni ekki að vera með of mikið dót, veit að sumar hafa alveg tapað sér í innkaupum ( það er mikið talað um þetta í meðgönguyoganu) en ég er meira svona less is more týpan hvað þetta varðar. Enda hef ég aðeins keypt einn galla á gæjann og eina peysu restina hef ég fengið hjá mömmu (sem tapaðir sér gersamlega í byrjun) og svo lánað hjá frænku minni sem mætti í heimsókn með 2 fulla kassa af fötum af sínum litla, þannig skápurinn/kommóðan er orðin alveg stútfull.
En allavega nóg um þetta, við erum að fara út að borða héf í vinnunni í hád. á nýja kínverska staðinn þar sem naustið var, Great wall Development heitir hann víst, en hún Gunna okkar er að halda til kólumbíu til að ná í litla prinsinn þeirra og svo fer hún í eins árs fæðingarorlof og við ætlum að kveðja hana núna með stæl.
22. ágúst 2007 klukkan 10:28
Heiða Sigþórsdóttir Engin athugasemd
Ég tók mér rúma viku í frí til að eyða með karlinum þar sem hann er nú loks búin með sumarskólann. Við ætluðum að skella okkur hringinn um verslunarmannahelgina, redda okkur fellihýsi og krúsa hringinn á viku til 10 dögum en þar sem veðrið átti að vera svo leiðinlegt þá slaufuðum við því. En eins og alltaf þá er nú bara mest lítið að marga þessa blessuðu verðurspár okkar íslendinga því veðrið var nú bara alveg ágætt þessa umtöluðu helgi. En við erum búin að eyða þessum frídögum saman í leti skötuhjúinn, varla gert nokkurn skapaðan hlut. Jú við fórum upp í sumarbústaðaland og plöntuðum nokkrum plöntum þannig við erum allavega búin að gera eitthvað við landið, elmar ætlar reyndar að setja niður einhverja staura til að marka landið og svona dúllerý. Og fórum á flúðir á sun. í verlsunarm. helginni og vorum í brekkusöng þar og eyddum kvöldinu og svo keyrði ég heim um nóttina með elmar og Ebba vel skrautlega í aftursætinu En annars er allt gott af okkur að frétta, lífið leikur við okkur og við eigum bara rúman mánuð eftir þar til erfinginn mun taka af okkur völdinn.......
13. ágúst 2007 klukkan 10:15
Heiða Sigþórsdóttir 2 athugasemdir
Við hittumst stelpurnar í gær úr breiðholtsskóla á Thorvaldssen. Stína er á landinu og þá var efnt til hittings sem ég verð að segja var nú ekkert rosa róð mæting. En Monika var löglega afsökuð þar sem hún var upp á fæðingardeild og lítill prins kom í heiminn um 7 í gærkvöld 3 vikum fyrir tíman, en þeim heilsast báðum vel og þetta er myndarstrákur 51 cm þrátt fyrir stuttan tíma í bumbunni. En innilega til hamingju Monika mín og auðvitað Júlli líka.
Það svoldið fyndið að við vorum 6 sem komum í gær og stína greyjið þurfti að hlusta á meðgöngutal allan tíman þar sem við vorum allar óléttar eða nýbúnar, ég og elva, magga og drífa og svo bryndís sem er nýbúin. En hún lifði þetta af og ég vona að hún hætti ekki að hitta okkur eftir þetta en ég skil vel að þetta skuli vera leiðinlegt að sitja í 2-3 tíma og hlusta á eilíft mal um óléttu og barnatengt, ég hefði ekki nennt að sitja undir þessu ó -ólétt.
Enn ein vikan að klárast og með síðustu heilgum í sumar sem hægt er að skella sér í útilegu- við erum reyndar ekki með neitt planað en það er aldrei að vita nema við gerum e-ð skemmtilegt þar sem elmar er nú að klára sumarskólann og það lítur ekki út fyrir að við förum neitt um verslunarmannahelgina.
26. júlí 2007 klukkan 14:54
Heiða Sigþórsdóttir 2 athugasemdir
Ég er komin með smá vinnuleiða og langar alveg rosalega í frí. Við skötuhjúin vorum að spá í að fara hringin í kringum verslunarmannahlegina en erum ekki gáfaðari en það að við vorum bara fyrst núna að byrja að spá í leigu á fellihýsi, en auðvitað eru þau bókuð með margra mánaða fyrirvara svo ég veit ekki alveg hvað við gerum. Svo ef einhver veit um fellihýsi sem væri hugsanlega laust til leigu þessa helgi endilega látið mig vita :), eða jafnvel bara tjaldvagn hann dugar.
Jæja farinn í kaffi bara nenni ekki að eyða tímanum lengur fyrir framan tölvuna í bili........
24. júlí 2007 klukkan 14:11
Heiða Sigþórsdóttir Engin athugasemd