23júlí

Gleymskan í hámarki

Enn ein helgina af sumrinu er nú liðin og þessi var tekin mestmegnis á letinni- enda tími til komin að hlaða batterýin. Fórum jú til Lilju og Lindu í afmæli á föstudagskvöldið og það sama kvöld byrjaði gleymsan að segja til sín, ég já ég sem glemyi nú ekki svo mikilvægum hlutum eins og veskinu mínu, tókst að gleyma því í búð og fattaði það ekki fyrr en seinna um kvöldið og var ekkert smá pirruð út í sjálfa mig. En ég vaknaði kl 9 á laugardagsmorgun dreif mig niður í húsasmiðju til að ná í veskið sem ég treysti á að væri þar því við vorum síðustu kúnnar út, en nei það fannst ekki þar. Þannig ég lokaði kortunum enn pirraðari en fyrr og við vorum tótally peningalaus því elmar gleymdi sínu veski upp á bifröst og þetta var ekkert smá óþægileg tilfinning- engir oeningar og enginn kort. En svo fannst veskið í gær og ég náði í það, það hafði verið sett inn á einhverja skrifstofu og læst þar svo ég fékk veskið með öllu í og var alveg himinglöð.
Mér var svo boðið í kökuboð til Elvu vinkonu í tilefni af afmælinu hennar sem er í dag en ég náttúrulega steingleymdi því eins og flestu þessa dagana.

En allavega til hamingju með afmæli Elva mín og Unnur líka Hlæjandi
23. júlí 2007 klukkan 10:03
Heiđa Sigţórsdóttir
Engin athugasemd
19júlí

Dúndurfréttir

Dúndurfréttir04032004 005

Ég fór á dúndurfréttir með Elmari og tveimur vinum hans frá brifröst þeim Gunna og Ebba í gærkveldi. Og ég verð  að segja að það var svo 1500 kr virði sú skemmtum því þeir eru alveg hreint geggjaðir þeir gaurar. Þeir tóku mest megnis Pink floyd og Led Zeppelin ásamt nokkrum Uriah Heep og Deep purple og ég verð að segja að ég bjóst ekki við að þeir væru svona góðir, það eru ekki margir sem ná háu tónunum eins og pétur  og svo er Matti líka alveg sér á báti. Gítarleikarinn sem hefur fengið hellings lof utan frá og þykir með þeim betri í dag er líka alveg geggjaður maður fylgdist alveg dolfallinn með þessum frábæru listamönnum allann þann tíma sem þeir spiluðu sem var nú of stutt, 2,5klst því þetta leið eins og 30 mín.

http://dundurfrettir.blogspot.com/ hér er síðan þeirra fyrir þá sem vilja kynna sér þá betur.

En ég verð að koma því að að það er æði að geta farið svona út og verið án reykingarstybbunnar sem alltaf fylgdi, ég kom heim og þurfti ekki að fara í sturtu til að ná af mér fýlunni. En líklega hefði ég ekki farið ef það hefði verið reykt þarna, þó svo að svitalykt og hvað á maður að segja sú lykt sem fylgir bjórdrykkju var vissulega til staðar en loftræstingin ræður betur við þá lykt svo það böggaði mig ekkert svo mikið. Það sem var aftur á móti mest böggandi var fólkið á næsta borði sem greinilega notaði tækifærið til þess að fá sér í glas á virkum degi og kjaftaði nonstop allan tíman, hvað er með fólk sem mætir á tónleikar og kjaftar allan tíman, akkuru er það ekki bara heima hjá sér og hlustar á tónlist þar fyrst það er ekki komið til að njóta tónleikanna, allavega það fór svoldið í mig en þó ekki það mikið að það hefði áhrif á tónleikana.

jæja það rignir........
19. júlí 2007 klukkan 13:53
Heiđa Sigţórsdóttir
1 athugasemd
18júlí

Ađ baka brauđ

Fann þetta inn á B2, hvað er málið með þennan gaur, á þetta að vera sexy eða hvað ég bara spyr því mér finnst þetta eiginlega bara ógeðslegt verð ég að segja

http://b2.is/?sida=tengill&id=245659

kíkjið endilega á þetta og segið mér hvort að þetta sé bara ég eða er þetta almennt álit.
18. júlí 2007 klukkan 13:20
Heiđa Sigţórsdóttir
2 athugasemdir
17júlí

Ţarf ađ segja meira......

17. júlí 2007 klukkan 13:49
Heiđa Sigţórsdóttir
Engin athugasemd
12júlí

Ćttarmót

Stefnan verður tekin á vestfirðina um helgina, nánar til tekið á litla bæ
Hér er hann, en þetta er víst orðið að safni í dag þetta er svo merkilegt.
En allavega það verður gaman að prófa að fara á nýjar slóðir og þar sem hvorki ég né Elmar höfum stigið fæti á vestfirði verður þetta upplifelsi og myndavélin verður með í för.

p.s búin að setja inn nokkrar myndir frá perketlögninni heima - þær eru undir myndir og svo prufumyndir
12. júlí 2007 klukkan 10:41
Heiđa Sigţórsdóttir
2 athugasemdir
06júlí

Allt ađ verđa klárt

Eða svo gott sem en það gegnur alveg rosavel að standsetja íbúðina í holtinu. Þó svo að ég sé óþolinmóð og hefði auðvitað viljað að allt gangi mun hraðar en ég get ekki kvartað og þetta er allt að koma. Helgin mun svo fara í að tæma þá gömlu endanlega og þrífa hátt og látt (púff er ekki nenna þeim parti) þannig það verður ekkert skemmtilegt gert þá helgina.
Svo fer næsta helgi í leiðangur á vestfirðina, en það er ættarmót þar hjá pabba fjölskyldu og þar sem ég og elmar höfum ekki stigið fæti á vestfirði ákvaðum við að slá til og skella okkur með.
Það var frekar óþægilegt að vakna í morgun því það var bæði kalt og hvasst, gluggatjöldin voru alveg á fullu því ég hef síðustu næstur sofið með opinn gluggan en þar sem veðrið hefur verið svo gott að varla hefur blásið en í morgun var allt á fullu og rok í herberginu, maður er bara orðin svo góðu vanur en nú er greinilega þetta eina sanna íslenska sumarveður komið til okkar.
Verð láta koma fram þakkir til strákanna sem hjálpuðu okkur í að parketleggja og flytja um síðustu helgin, þetta gekk svo vel og hratt fyrir sig því þeir unnu allir eins og herforingjar og án þeirra hefði þetta tekið mun lengri tíma. Svo Gústi, Jón og Bjössi takk takk æðislega fyrir hjálpina og auðvitað stelpur líka, Linda, Lilja og Erna, ég var svo búin á því þarna í lokin að ég hef örugglega ekki þakkað fyrir okkur. En ég verð að viðurkenna að ég gerði mér ekki grein fyrir hversu mikil vinna þetta er að flytja og líka erfitt þar sem ég get ekki gert eins mikið sjálf og ég hefði viljað ( sökum bumbubúa) . En þar sem ég gleymdi að hafa með myndavel til að mynda framkvæmdirnar verð ég að treysta á myndir frá Lindu, en ég fæ þær hjá henni við tækifæri og skelli inn.
Signý er komin til landsins og kíkti inn á mán til að sjá höllina þó hún væri nú ekki enn gestahæf en það var gaman að sjá hana enda langt síðan síðast. Við ætlum að reyna að stefna á útilegu eða eitthvað skemmtilegt í sumar og ég vona að það verði eitthvað úr því. Svo kom Bryndís með Kötlu í innlit í gær og sú litla stækkar og stækkar og hló og skrýkti af þessu öllu saman- kippti sér ekkert upp við þó pabbi æri að bora á fullu.
Jæja nóg í bili af innihaldslitlu þvaðri.......
06. júlí 2007 klukkan 12:14
Heiđa Sigţórsdóttir
2 athugasemdir
26júní

Sumar á íslandi

Sumarið er svo sannarlega komið hér og veðurblíðan alveg yndisleg þessa dagana. Reyndar var ég orðin svoldið pirruð í gærkvöldi þegar ég ætlaði snemma að sofa eftir erfiðan dag en það gekk nú ekki svo vel þar sem ég var bókstaflega böðuð í sólarljósi, því seinnipartinn í gær ákvað sólin að koma fram og skýjin að hverfa á brott og kvöldsólin gersamlega lýsir upp íbúðina mína svo varla er hægt að horfa á sjónvarpið. En hei ég veit maður getur ekki kvartað því þetta er yndislegt og helst vildi ég geta sleppt því að sofa á sumrin því sumarnæturnar er svo æðislegar í sólarljósinu.

Um síðustu helgi skelltum við okkur í bíltúr á laugardagskvöldið inn í Þórsmörk, þetta var svona alveg óvænt ákvörðun því við vorum bara í rólegheitum í mat upp í bústað og ákváðum að skella okkur inn eftir í bíltúr. Við náðum brennunni og hittum lindu og gústa, lilju og jón og vorum þar í svona 2 tíma og keyrðum svo í bæinn, þetta var fínn bíltúr og ég verð að viðurkenna að ég var fegin að hafa ekki gist þegar ég sá að hitamælirinn fór niður í 2,5°C á leiðinni heim.

Við skötuhjúin erum nú loks búin að ákveða parket á nýja slottið og gardínur og ljós eru næsta mál þannig næsti föstudagur fer líklega í þær ákvarðanir.

Annars allt gott að frétta og það fer nú að styttast að við stofnum síðu fyrir "soninn" þar sem bumbumyndir (signý fyrir þig :) ) birtast í fyrsta sinn, reyndar hef ég aðeins tekið eina bumbumynd af mér og það er orðið heillangt síðan svo þær verða e-ð fáar.
26. júní 2007 klukkan 11:07
Heiđa Sigţórsdóttir
2 athugasemdir
22júní

Húsfélagsfundur

Búin að skrifa undir og bíð bara spennt eftir lyklunum sem ég fæ 1.júlí. Mín mætti á sinn fyrsta húsfélagsfund í gær og það gekk nú bara ágætlega, kom mér frá því að fara í stjórn og einhverja svoleiðis vitleysu þannig ég var sátt. Helgin mun því líklega ekki fara í þórsmerkurútilegu eins og til stóð því við verðum að fara að skoða parket og pakka eitthvað af dótinu okkar og stússast í ískápaskiptum og fleira skemmtilegt.
En það er blessuð blíðan og ekki annað hægt en að vera með bros á vör og svo er líka grill hérna í hádeginu og ís á eftir svo ég fer út í helgina vel mett og sæl.
Annars er nú lítið að frétta af okkur, lille man stækkar og stækkar og sparkar og sparkar þannig ég stækka með mér til mikillar "ánægju". Elmarinn lærir og lærir í skólanum á milli þess sem þeir félagarnir upp frá skella sér í fótbolta eða körfu, stundum skella þeir sér í hjólaferðir eða einfaldlega grilla sér læra og sötra bjór í pottinum því það er jú svvvoooo erfitt að læra í góða veðrinu er mér sagt, en svo lendi sem hann stendur sig þá kvarta ég ekki.
22. júní 2007 klukkan 10:29
Heiđa Sigţórsdóttir
Engin athugasemd
18júní

Útilegan mikla

Við fórum skötuhjúin í þakgil um helgina ásamt Lindu og Gústa, Ernu og Bjössa. Það var lagt í hann um 7 leytið og svo  stoppað á sveita resturant á Hellu og fengið sér í gogginn þannig við vorum ekki komin inn eftir fyrr en um 11-12. En allavega ferðin gekk áfallalaust fyrir sig, boran kemst allr greyjið, meira að segja þenna jeppaslóða þarna inn eftir ( okkur leist nú ekkert á þetta á tíma). En jú við hentum upp tjaldi og svo fljótlega á eftir var farið að sofa bara. Ég verð að viðurkenna að það var svoldið kalt- ég er náttúrulega svo þrjósk að ég vildi vera í mínu tjaldi ekkert fá að gista í fellihýsi hjá ernu og bjössa þannig þessi nótt að svona ja ekki mikill svefn alla vega. En jú svo um hád. fórum við á stað í að skoða alla þessa staði í þakgili, hella og gil, en það er alveg rosalega fallegt þarna. En nema hvað það byrjaði að rigna um 2 og það hætti ekkert allan daginn svo við borðuðum kvöldmat með liðinu og pökkuðum svo saman rennandi blauta tjaldinu og héldum heim á leið um 11. Þau hin voru í fellihýsum svo þau voru í góðum málum þó svo að ekki sé nú gaman að vera í útilegu í rigningu.

En lánið er komið í gegn og ég fer að skoða íbúðina á mið. til að ath hvort allt sé ekki eins og það á að vera og svo bara ekkert annað en að skrifa undir og bíða eftir 1. júlí.
18. júní 2007 klukkan 14:19
Heiđa Sigţórsdóttir
3 athugasemdir
13júní

Mćtt til vinnu á ný

Hæ hó
Ég er komin heim og hversdagsleikinn tekinn við. Reyndar ekkert svo hversdagslegt að vera að sækja um lán á sinni fyrstu íbúð og vera að skoða barnabílstóla en það er það sem ég er búin að vera að gera síðustu daga. En ég er alveg ótrúlega róleg yfir þessu barnastandi, hef jú keypt einn galla á grislinginn og er aðeins farin að spá í barnabílstól en annars er þetta bara eitthvað sem kemur, er allavega ekkert að stressa mig á þessu, veit að mamma er búin að tapa sér í innkaupum svo ég veit að mig á ekki eftir að vanta neitt. En íbúðamálin eru í fullum gír og ég bíð bara eftir svari um lánið og svo eru bara hva.. tæpar 3 vikur í afhendingu en þá fer allt á fullt og þá fara kortin að hitna og mínusinn að hækka... en það er seinni tíma vandamál og þetta verður þess virði.
Já það eru víst allir að spurja mig hvernig var úti þannig það erbest ég komi því að hér; það var fínt, Lanzarote er fín eyja með geggjaðri náttúru og eldfjöllum, þar var sól en líka hýfandi rok svo ekki var of heitt ( eiginlega svoldið kalt seinnipartinn og á kvöldin), en ég er rosa sátt við ferðin en ánægð með að vera komin heim enda mikið um að vera hjá mér núna og auðvitað var ég líka farinn að sakna kallsins rosalega mikið....
Við stefnum á útilegu um helgina en mig er einmitt búið að langa svo í útilegu svo þetta verður fínt, það er bara að krossa putta og vona að veðrið verði gott í þakgili um helgina....
13. júní 2007 klukkan 15:35
Heiđa Sigţórsdóttir
2 athugasemdir

Klukkan

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Prófíll

  • Nafn: Heiđa Sigţórsdóttir
  • Stađur: Reykjavík
  • Kyn: kvk
  • Atvinna: Lífefnafrćđingur hjá Decode
  • Hjúskaparstađa: Á eitt stykki kall
  • Um mig: Ég er hress og jákvćđ manneskja sem er alltaf til í eitthvađ skemmtilegt, nema ef ég nenni ţví ekki.....

Innskráningar kubbur

Leikur dagsins

Textareitur

Leit