25janúar

Hverjum frægum líkist ég

Ég fór inn á svoldið skemmtilega síðu http://www.myheritage.com þar sem er hægt að sjá hverjum maður líkist. Ég er ekkert í neitt svaka slæmum málum hvað það varðar. En ég náði ekki að setja það hér inn en hér er linkurinn inn á myndina mína.
 http://www.myheritage.com/FP/photo.php?siteID=1&photoID=8008969&source=album&sourceID=1742021&albumID=1742021


Annars þá styttist nú óðum í skíðin ef þið skildum hafa komist hjá því að taka eftir því Skömmustulegur því ég er ósjaldan búin að minnast á það hér.

25. janúar 2007 klukkan 16:59
Heiða Sigþórsdóttir
Engin athugasemd
23janúar

OMG

Do I need to say more....
jossssssshhh.jpg
23. janúar 2007 klukkan 19:25
Heiða Sigþórsdóttir
2 athugasemdir
22janúar

stórfengleg

Ég fór óvænt í leikhús á laugardag á sýninguna Stórfengleg í Þjóðleikhúsinu með Fanney. Það var bara nokkuð gaman- ég hló allavega nokkrum sinnum og hún Ólafía Hrönn er náttúrulega alveg frábær í þessu hlutverki og svo var Örn Árna líka og hann klikkar ekki.
Þar á eftir kíkti ég til Guðnýjar í innfluttningspartý á Víkurbakkann og það var fínt- fín íbúð sem búið er að taka alla í gegn- væri alvegtil í að búa þarna.
Fór svo á sunndag í skýrn til Elvu og Egils, messan var í dómkirkjunni og svo veisla heima hjá foreldrum hennar á Frekmristekk 7 (ekki langt fyrir mig að fara). Ísabella Sól var alveg eins og engill í messunni, heyrðist ekki í henni allan tímann, en svo þegar í veisluna var komið þá var hún komin með nóg- enda stór dagur hjá henni.
Leikurinn á sun- ja hvað getur maður sagt- líklega ekki neitt en maður var frekar fúll og pirraður- elmar blótaði þeim í sand og ösku allan tíman en ég var svona meira í að peppa þá upp geyjin en það hefru ekki náð til þeirra. En ég vona að þeir séu í betra formi í dag fyrir leikinn því annars er allt búið. Svo ég segji áfram strákar- á góðum degi gæti þeir tekið frakkana og ég vona að í dag sé góður dagur.

Smá skilaboð til veðra guðsins- meirir hita hér á klakann því ég er orðin leið á þessum helv... kulda hér en ég vill frá meiri snjó á Ítalíu (nánar til tekið á Selva) því það er ekkert svo mikill snjór þar þessa dagana- en samt alveg hægt að skíða en mætti vera meira.

22. janúar 2007 klukkan 16:30
Heiða Sigþórsdóttir
Engin athugasemd
19janúar

Meiri fréttir af Elmari

Já Elmarinn er enn á lifi, hann fór í aðgerð í gær til að negla saman á honum löppina og líður vel eftir atvikum. Ég skutlaði honum upp á slysó í gær til að láta skipta um gips, hann hringdi svo í mig nokkrum tímum seinna til að segja mér að löppin væri svo illa brotinn að það þyrfti að skera hann upp til að setja pinna í beinin. Ég hringdi svo í hann í gærkveldi til að ath hvernig hann hefði það en þá var hann nývaknaður og ekki alveg í þessum heimi. Hann hringdi svo seinna í gærkveldi og ég kíkti á hann og honum leið bara þokkalega enda á kæruleysisilyfi svo hann hefur ekki fundið mikið til. Þannig framhaldið er þannig að hann á að vera rúmliggjandi næstu 2 vikurnar og svo líklega í göngugips í 6 vikur svo tekur líklega endurhæfing við. Þannig það sem átti að vera rólegt kvöld með strákunum endaði með mölbrotinni löpp, slitnu liðbandi og miklum sársauka næstu mánuði. Og ég held að allir sem þekkji hann Elmar geti verið sammála um það að enginn nema hann gæti verið svona óheppin, það virðist sem óheppnin elti hann hreinlega á röndunum og yfirleitt endar allt á versta vel hjá honum karlinum.

Þannig hann verður hjá mér fastur í sófanum næstu 2 vikurnar þannig heimsóknir eru vel þegnar til að létta honum lund, og mér til að ég endi ekki á kleppi því svona þjónustustúss á ekki alveg við mig Óákveðinn.

En nóg um það það er föstudagur og önur vikan í yoganu hjá mér er að enda. Ég er orðin mun færari ogsleipari í æfingunum- reyndar tókst mér að hrasa eftir tíman á mið- ég og fanney fórum á Quiznos eftir tíman og mér skrikaði fótur og endaði á rassinum. Við fallið ( sem fanney hló mikið af- því ég náði að renna á rassinn og sveifla matnum í heilkring og skella honum svo í jörðina) hef ég greinilega eitthvað snúið á mér hnéð og er hálf hölt núna- ég er alveg með í maganum að þetta lagist ekki fyrir skíðin.

Nóg að gera hjá mér um helgina- innfluttningspartý hjá Guðný ( úr háskólanum) á laugardag og svo skýrn hjá Elvu Dögg á sun. Þannig nóg að gera um helgina- fyndið hvernig allt hittist svona á sömu helgina hjá manni.
19. janúar 2007 klukkan 15:47
Heiða Sigþórsdóttir
Engin athugasemd
15janúar

nú styttist í skíðin

Ég er orðin nokkuð góð í skíðaferðina, komin með nýja skó (sem elmargaf mér í jólagjöf), nýja vettlinga og húfu (frá systkinum mínum) og gjaldeyri ( fékk frá mömmu og pabba í jólagjöf), ég á úlpur (eina þykka North face og eins þunna north face), og buxur á ég eða fæ lánaðar. Þannig ég er orðin good to go, nema að ég þyrfti að kíkja aðeins á skíði til að ath hvort ég standi ekki í lappirnar ennþá. En ég ætla að reyna að kíkja í vikunni og vona að ég slasi mig ekki Fýldur.
Ég er búin að vera að skoða síður á netinu um svæðið og skoða kort og ég erorðin rosalega spennt- ég veit heldur ekkert hvað ég er að fara út í því ég hef ekki farið á skíði erlendis áður.
Ég kíkti á google.earth áðan og vá ég gat skoðað húsið mitt og séð hvernig bíll var fyrir utan, þetta er reyndar eitthvað gömul mynd (kannski 2-3 ára) en þetta er ekkert smá merkilegt að sjá þetta.

Fór á leikinn í  gær með Bryndísi og Gumma; Ísland- Tékkland í höllinni, þða var svona la la ekki eins góður og síðasti leikur sem ég fór á en það var ísl.- dan á 17. júní og þá var stemming. Þessi leikur var ja eins og ég segi la la ekkert meira en það, enginn brjáluð stemming og svona miðlungs spennandi. En það sem hafði líka áhrif var að það voru e-r gaurara fyrir aftan okkur sem voru svo mikið að garga og góla, þóttust svo alveg vera með þetta á hreinu hvernig ætti að spila og dæma, voru jafnvel í að segja Óla hvað hann ætti að gera og svona- allataf stuð að lenda nálægt svoleiðis fólki.

Annars var helgin bara róleg í alla staði- leti ágætur matur og video. Elmar var líka sófaliggjandi svo hann fór ekki mikið- en jú ég kíkti í bæinn á laug. og nái að kaupa mér yogadýnu, vei þá þarf ég ekki að vera á sveittri dýnu frá e-m öðrum í næsta tíma.......

15. janúar 2007 klukkan 22:21
Heiða Sigþórsdóttir
1 athugasemd
12janúar

Elmar á alla mína samúð skilið


Ég fékk hringingu kl 2 í nótt, ég var svosöm ekki í fastasvefni en ok. Þetta var Elmar- hann hljómaði svoldið skrýtinn svo ég hélt að hann væri drukkinn, en samt ekki því hann verður svoldið þvoglumæltur þegar hann er drukkinn. En allavega þá segir hann mér það að hann hafi verið að koma af sjúkrahúsinu, sjúkró var að skutla honum heim. Ég náttúrulega hrekk upp alveg, what hvað varst að gera þar- hvað kom fyrir, jú þá höfðu þeir strákarnir verið að rölta niður á kaffihús til að sjá Lay Low spila og voru í góðum gír og voru að kasta sjnóboltum í hvort annan. Hann hafi stigið eitthvað vitlaust niður, heyrt eitthvað spella í öklanum og steinlegið- gat ekki hreyft sig þar til sjúkró kom að ná í hann 40 mín. seinna  (lá ískaldur í snjónum). Þegar upp á sjúkró var komið þá komust þeir að því að hann braut eina pípu og sleit liðbandið í öklanum. Hann fékk morfín í æð (hence the drunken effect- ekki skrýtið að ég hélt hann væri á perunni). Hann þarf að vera í gipsi í mán allavega og svo í endurhæfingu. Þannig ég verð með sófadýr hjá mér allaveg a næstu viku og svo er spurnig hvort hann fari upp eftir þegar hann er búin að fá göngugips, svo hann falli nú ekki í skólanum við þetta fall.
En ég get nokkurn vegin ímyndað mér sársaukann, vona bara að hann hafi eitthvað náð að sofa í nótt- því að þegar morfínið hættir að virka þá kemur sársaukinn á full spead.
Hér er mynd af fótbroti:



Og hér af gipsi....

hér er linkur á fréttina á mbl.
http://www.mbl.is/mm/frettir/innlent/frett.html?nid=1246670
12. janúar 2007 klukkan 16:23
Heiða Sigþórsdóttir
2 athugasemdir
09janúar

Byrjuð í nýársátakinu


Í gær var fysti tíminn í athtanga yoganu sem ég oog fanney skelltum okkur í fyrir skíðaferðina. Og ég verð að segja að ég er rosa ánægð með að haf skellt mér í þetta, þó svo að þetta sé svoldið keyrsla, 3 tímar í viku í 1,5 tíma í senn í 3 vikur. En ég er alveg fullviss um að ég hafi gott af þessu og mun verða í betra formi fyrir skíðaferðina ógurlegu. Það er að byrja að votta fyrir smá harðsperrum í bakinu núna en annars get ég ekki kvartað.
Hér má sjá hvernig ég verð í lok námskeiðisins- en við erum í svona aleins einfaldari útgáfum af þessum æfingum núna http://youtube.com/watch?v=Hu9Sq1RvuoA

Í tilefni af afmælinu hans Egils í gær þá fórum við familian út að borða á Hereford steikhús, ég far ekki alveg á því að fá mér nautasteik svona rétt eftir yogað svo ég skellti mér í túnfisksteik bara svona til að prófa og vá ég sé ekki eftir því, því hún var geggjuð, ég hafði svosöm engar væntingar því ég hef heyrt um að besta steikin sé á sjávarréttakjallaranum, en ég verð að segja að þessi var alveg meiriháttar.
09. janúar 2007 klukkan 16:36
Heiða Sigþórsdóttir
Engin athugasemd
08janúar

Agla grjónið er tvítugur í dag

Já það er ótrúlegt að Egill litli bróðir sem ég var alltaf að passa þegar ég var yngri, hélt á honum um allt er orðin 20. ára. Ég segi því bara innilega til hamingju með daginn Egill minn.

Picture 017
Salud
08. janúar 2007 klukkan 16:13
Heiða Sigþórsdóttir
Engin athugasemd
03janúar

Enn eitt árið gengið í garð

Já það er ótrúlegt að það sé komið 2007, ég man þegar maður var yngri og hugsaði til framtíðarinnar þá var 2010 alveg far far away en núna er það bara á næsta leiti. Og framtíðarmyndir þar sem bílarnir eru fljúgandi og hægt að frysta fólk og margt fleira sem fólk hélt að væri hægt að gera í framtíðinni (Demolition man og fleiri myndir) - nú erum við í þeirri framtíð og ekki hef ég séð flúgandi bíla enn, en ég bíð spennt.
Ég var í 10 daga fríi yfir jólin og ég gæti alveg verið lengur. Ég lá í leti allan tíman ég get ekki sagt annað- því þegar ég hugsa til baka þá man ég ekki eftir neinu merkilegu og ég sem ætlaði að gera svo margt skemmtilegt í þessu langa fríi, en svona er þetta.
Stelpurnar kíktu til mín í gær í spil, Sóley og Signý eru á landinu og við erum búnar að ætla að hittast öll jólin en nú loks varð að því, ekki seinna vænna því sóley og jesper (kærastinn hennar)  fara út á fös. En við spiluðum úr okkur allt vit alveg til 1 í nótt og ég varð að gjalda þess í morgun þegar ég vaknaði Óákveðinn alveg ógeðslega þreytt. Kisa greyjið átti smá tilþrif um kvöldið þegar heni tókst að kveikja í skottinu á sér í kerti sem var á borðinu- ég var alveg agndofa og gat ekkert gert- hélt að kötturinn myndi bara fuðra upp þarna á borðinu (alveg helvíti mikið hár á einum ketti) en bryndísi tókst að slökkva í henni og við lágum öll í hláturskasti á eftir. Þurftum að lofta út því það var svo mikil sviðalykt inni, en kisa tók ekki eftir neinu heldur hélt bara áfram að spóka sig um eins og henni einni er lagið.
03. janúar 2007 klukkan 22:54
Heiða Sigþórsdóttir
Engin athugasemd
22desember

Gleðileg Jól

Hó hó hó
Gelðileg Jól allir saman, vonandi hafið þið það sem allra best um jólin. Hætti að lesa bloggið hjá vinum og vandamönnum og fáið ykkur jólaöl og farið að spila.
Það er öllumvelkomið að kíkja í heimsókn um jólin í spil eða eitthvað skemmtilegt- ég bakaði smákökur meira að segja en ég veit ekki hvort elmar verður búin með þær fyrir jólin, því það er farið að ganga ansi vel á sörurnar sýndist mér síðanst þegar ég kíkti......

En allavega gleðileg jól


22. desember 2006 klukkan 19:30
Heiða Sigþórsdóttir
1 athugasemd

Klukkan

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Prófíll

  • Nafn: Heiða Sigþórsdóttir
  • Staður: Reykjavík
  • Kyn: kvk
  • Atvinna: Lífefnafræðingur hjá Decode
  • Hjúskaparstaða: Á eitt stykki kall
  • Um mig: Ég er hress og jákvæð manneskja sem er alltaf til í eitthvað skemmtilegt, nema ef ég nenni því ekki.....

Innskráningar kubbur

Leikur dagsins

Textareitur

Leit