20október

Ţá er komiđ ađ ţví ég er á leiđ til Orlando á eftir


Það er alveg ótrúlegt þegar maður er búin að vera að bíða eftir eitthverju í svoldið langan tíma að þegar svo loksins kemur að því þá er maður svona eiginlega dofin. Kannski er það af því maður er búin að venjast tilhugsuninni og búin að ýminda sér aðstæðurnar alveg fram og til baka. En þeir sem þekkja mig vita að ég elska að ferðast, finnst fátt skemmtilegra en að skella mér til útlanda (enda er þetta 3 ferðin mín í ár) en ég er einhvern vegin ekki spennt, svona bara la la, jú auðvitað hlakkar mig til að fara en ég er ekkkert að springa eins og oft áður. Ég pakkaði til dæmis bara í gærkvöldi áður en ég fór að sofa og aðeins í morgun. En aftur á móti þegar ég fór til Búlgaríu þá var ég geðveikt spennt,(sbr. var búin að pakka 2-3 dögum áður Skömmustulegur) en þá fór ég líka með stuttum fyrirvara ,héld ég hafi pantað með 5 daga fyrirvara þá.

En allavega Sunshine state here I come......
A beach

Ætli það verði nú ekki eitthvað verslað líka og kíkt í skemmtigarðana eins og Disney, Epcot center eða Universal studios og kannski sólað sig smá.


Fyndið þegar maður leitar á google að myndum, ég til dæmis leitaði eftir Orlando og ég fékk helling af myndum af Orlando Bloom ( þannig ég varð að láta mynd af honum fylgja með ),
einhverjum whan´t to be og helling af einhverjum myndum sem tengjast orlando ekki neitt, hvorki leikaranum né borginni.










see ya all.....
20. október 2006 klukkan 15:22
Heiđa Sigţórsdóttir
1 athugasemd
18október

Spilakvöldiđ međ stelpunum úr vinnunni

Það gekk vonum framar verð ég að segja, góð mæting og allir í góðu skapi og allt gekk vel fyrir sig- enginn slagsmál þó svo að ég hafi verið í liðinu sem tapaði í bæði skiptin. Fyrst tókum við Sequence
sem er rosa skemmtilegt að mínu mati og gaman að vera margir en bara með 2 lið til að gera þetta meira spennandi. Þar næst tókum við trivial persuit
 en það gekk svona upp og ofan því ég er sannfærð um að mitt lið fékk miklu erfiðari spurningar en hitt liðið fékk alveg imba proof verð ég að segja. En þetta var voða gaman og við vorum að til hálf tólf að kjafta en þá var komin tími til að fara heim í bælið til að fá smá lúr fyrir nýjan vinnudag.
Ég þarf að gera mér ferð upp á Bifröst eftir vinnu í dag til að ná í myndavélina mína
sem ég gleymdi þar þegar ég fór þangað upp eftir fyrir nokkru og ég verð að segja að ég hefði viljað eyða tímanum í eitthvað annað en að sitja í bíl í 3 klst. en svona er þetta bara því ekki get ég farið til útlanda án myndavélar, það væri nú alveg glatað held ég. Elmar bauðst meira að segja til að lána mér flottu vélina sína
en ég veit ekki, ég kann svosöm ekkert á hana en hún er alveg geggjuð svo ég gæti nú kannski þegið hana og fiktað mig bara áfram.

Gaman að geta sett svona myndir inn á bloggið maður það er miklu skemmtilegra að lesa það..........
18. október 2006 klukkan 15:01
Heiđa Sigţórsdóttir
2 athugasemdir
17október

My new boyfriendddddddddd


IPB Image

Stelpur; hann er frátekinn og hann er minn. Ég veit, slefiði bara því ég á flottasta kærasta í heimi og hann er líka svo klár að hann getur skipulagt að brjótast út úr fangelsi upp á eigin spýtur og skipulagt flótta fyrir sig og bróður sinn. Ég veit ég er heppnasta gella í heimi, vandamálið er bara að ég finn hann ekki og hann veit eiginlega ekki að við erum saman.......en ég er að fara til USA á fös að leita að honum....



17. október 2006 klukkan 17:44
Heiđa Sigţórsdóttir
1 athugasemd
17október

Myndir frá Föstudeginum- Halloween partýinu


Ég og Bryndís a.k.a Ting Tong og Tong Ting

 
Fanney a.k.a Dr.Usla Heilaskurðlæknir
17. október 2006 klukkan 15:09
Heiđa Sigţórsdóttir
2 athugasemdir
16október

Loksins komin međ farseđilinn í hendur

Já nú í morgun mætti ég út á flugleiðir, var liggur við mætt á húnin og beið eftir opnum, en allavega þá loksins gat ég talað við gelluna sem sá um bókunina okkar og breytingu. En það var eitthvað vandamál með bókunina og aðeins hún gat lagað og skoðaða hana  ( og þetta á að heita 21. öldin með allri þeirri tækni sem henni fylgir en aðeins ein kona getur skoðaða og lagað bókunina okkar). En allavega þá erum við komin með farseðla í hönd, voucher fyrir bíl og hóteli, loforð um að hún ætli að raða okkur saman í sæti í vélinni og það er sól úti. Er hægt að óska einhvers meira svona á mánudagsmorgni. Það er öll familian búin að vera á nálum í tæpa viku út af  þessu, bókunin var öll í fokki og egninn gat gert nokkurn skapaðan hlut nema að bíða ( ekki mín sterkasta hlið), en þolinmæðin þrautir vinnur allar.
Helgin var svona ja svoldið stremin hjá mér, ég fór á halloween ballið á fös. við vorum geggjað flottar(myndir seinna) en við unnum ekki verðlaun fyrir bestu búninga svona við fórum þá náttlega bara heim ( í fýlu) um miðnætti. Laugardagurinn var svona svolil keyrsla, fyrst fýluferð út á flugleiðir, svo í Ikea með mömmu og við eyddum svoldið Skömmustulegur. Þaðan lá leiðin í EGG því mamma hafði aldrei farið þangað og auðvitað bauðst ég til að sýna henni hölluna. Þegar heim var komið þurfti að prófa að stilla upp öllu góssinu sem við keyptum og stílisera öllu upp á nýtt það er hösku púl og sjá um 2 heimili ( mitt og svo hjá ma og pa, en það er enn heima í mínum huga). Laugard. kvöldið var svona leti kvöld, video og frekar snemma að sofa. Ég mæli ekki með Nacho Libre, hún er ömurleg hreint út sagtm ég held ég hafi brosað svona einu sinni og svona út í annað kannksi tvisvar ekki meir svo ég ráðlegg fólki að eyða tímanum í eitthvað annað. Í gær var það aftur Ikea til að kaupa hluti sem vantaði í gardínustöng sem ég keypti á laug., alveg ótrúlegt að það skuli ekki fylgja skrúfur og festingar til að hengja upp hluti sem maður kaupur hjá þeim, voru Ikea ekki frægir fyrir að vera svo þægilegir með það, að það fylgji allt með. Þannig ég þurfti að gera með ferð á sunnudag í helvítis sunnudagstraffíkina (eru allir í rólegur bíltúr á sunnudögum eða ?) og búðin var geðveiki það svo mikið af fólki. Þannig ég kom heim úr skottúrnum eftir 2 klukkutíma takk fyrir, ég var ekki ánægð með Ikea á þessari stundu. En allavega er  heimilið mitt er orðið aðeins huggulegra svo ég get ekki annað en brosað, er að spá í að bjóða stelpunum úr vinnunni í spil annað kvöld á meðan allt er enn fínt Tala af sér
jæja best að fara að kíkja á victoria secret og fleiri búðir til að vita hvað ég á að kaupa í amerikunni
16. október 2006 klukkan 17:40
Heiđa Sigţórsdóttir
Engin athugasemd
13október

Föstudagur föstudagur

Jamm og jei það er föstudagur í dag og í allan dag. Veðrið er svona ja eigum við ekki að segja að það sæmi íslandi ágætlega. En í kvöld er Halloween partyið hér í vinnunni og það er haldið á Q barnum, það er þar sem Ari í Ögri var, ég  hef ekki komið þangað eftir breytingar en mér er sagt að það sé voða flott. Upphafleg átti að halda þetta á Vesölum, salurinn þarna á Hallveigarstíg en sökum lélegrar þátttöku var skipt um staðsetningu, það er greinilega ekki allir svona spenntir eins og ég og BryndísHlæjandi að spóka sig í grímubúningum.
Við ætlum að hittast heima hjá Fanney og borða saman og bæta í sminkið áður en við skellum okkur svo í partýið og hirðum verðlaunin fyrir flottasta búninginn. 
Hér erum við í búningunum

13. október 2006 klukkan 14:55
Heiđa Sigţórsdóttir
Engin athugasemd
11október

Halloween party í vinnunni á fös.

Ég er búin að spá og spekulega heillengi yfir því í hverju ég eigi að klæðast á föstudaginn og nú loks er ég búin að ákverða að vera bara Geisha. Fann svona kimani kjól/slopp heima hja mömmu og ætla bara að vera í honum, svo ætlum við Bryndís í leiðangur að leita að hárkollu á eftir. Svo er það bara make-up-ið sem er smá kúnst víst en ég er viss um að við náum að redda því. Ætlum að hittast í kvöld með smá general prufu yfir TV-kvöldi og pizzum til að ræða þetta Koss.


En markmiðið er að ná þessu lúkki, eða eitthvað líkt þessu.......
11. október 2006 klukkan 17:13
Heiđa Sigţórsdóttir
4 athugasemdir
10október

Skessubolti

Fór í gær í annan tíma í "skessuboltann" sem með Fanney og vinkonum hennar. Ein þeirra reddaði tíma í íþróttahúsinu í Lækjarskóla á mánudagskvöldum í vetur og við erum nokkrar sem mætum. mismargar þó. En þetta eru flestar gamlar handboltagellur úr KR og Val en ég kannast ekkert við þær samt þó ég telji mig nú vera gamla handboltagellu og þær kannast heldur ekkert við mig. En allavega þá er þetta þrælgaman að sprella og sprikla aðeins í góðum og hressum hóp. Við erum í körfu, fótbolta, brennó og bandí bara svona eftir hvað við nennum og dugum á þolinu (sem ja hefur verið betra getum við sagt Tala af sér). Svo jú ég held að rassinn verði svoldið aumur í dag er aðeins svona farinn að finna fyrir harðsperrum, en það er ávísum á kúlurass svo ég get ekki annað en verið ánægð Brosandi.



10. október 2006 klukkan 14:45
Heiđa Sigţórsdóttir
Engin athugasemd
09október

Haust tiltekt

Já ég ákvað það um helgina að taka smá í gegn heima hjá mér. Æji þið vitið hvernig þetta er mann langar að gera eitthvað nýtt og kósý þegar fer að kólna svona úti.  Kíkti með Bryndísi í nýju búðina í smáranum EGG og hún er orðin nýja uppáhaldsbúðin mín, alveg geggjuð. Allta þar í svona einföldum formum, mikið í svörtu og hvítu með svona blóma mynstri og þessa háttar.

Sá líka alveg geggjuð veggfóður það en ég fór upphaflega í leiðangur til að finna veggfóður til að setja heima, eða bara svona eina rönd. En það er alveg hellingur til af allskyns veggfóðri en það er svona misdýrt, alveg frá svona 3000 upp í 15000 rúllan og þar sem ég var bara að  setja eina rönd var ég ekki alveg á því að týma þessu. En ég kíkti í litaver, þeir eru með alveghelling líka á aðeins viðráðanlegra verði. En heppnin var með mér því að Linda var að vinna í litaveri á laugard. og hún reddaði mér ansi góðum díl á ræmunni, takk Linda Glottandi

En það er alveg ótrúlegt hvað svona ein ræma getur breytt miklu fyrir íbúðina og ég tala nú ekki um glatt mitt litla hjarta.



 
09. október 2006 klukkan 16:09
Heiđa Sigţórsdóttir
4 athugasemdir
06október

hvenćr er mađur orđin fullorđin

Var svona að velta þessu fyrir mér hvenær maður telst vera orðin fullorðin. Ég veit svosöm að ég er enginn krakki lengur en ég vill líta á mig sem stelpu en ekki konu. En það hafa væntanlega allar "stelpur" á mínum aldri  lent í því að lítil börn kalla mann konu eða foreldrar segja við börnin sín " láttu konuna fá þetta" eða eitthvað í þessum dúr. En það er skrýtið hvað þetta stingur að heyra talað um sig sem konu, það er bara eins og maður sé komin á dánarbeðið. Ég veit alveg að ég er Kona en ekki barn en mér finnst stelpa vera svona betur við hæfi, eiginlega finnst mér vanta svona orð til að lýsa okkur fullorðnu stelpunum.
En allavega að vera fullorðin er eitthvað sem mann dreymdi um á unglingsárunum og gat ekki beðið eftir að vera komin í fullorðina manna tölu. Það átti víst að gerast um fermingu en ef ég hugsa til baka þá finnst mér ekki eins og ég hafi verið fullorðin þá. Er maður orðin fullorðin þegar maður fer að stunda kynlíf? Eða þegar maður er farinn að vinna fyrir sér?  Þegar maður flytur að heiman? Eða bara þegar maður er komin með nægilegan þroska til að fúnkera upp á eign spýtur í þessu samfélagi ? En ef svo er þá verða margir aldrei fullorðnir því miður.
En svo fer þetta bara eftir því hvernig þú lítur á sjálfan þig held ég, veit til dæmis um eins sem er að vinna með mér og hún er bara kona, gömul sál sem er bara gömul kelling, en aftur á móti eru aðrar að vinna með mér á sama aldri en eru samt bara eins og ég, algerir stuðboltar. Held maður sé ekki eldri en þér finnst þú vera, sama hvað aðrir segja, því þegar fólk er allavega búið að ná 20-25 ára er aldrur orðin svo afstæður. Allavega í flestum tilfellum og það borgar sig ekki að taka lífið og alvarlega því þú sleppur ekki lifandi frá því. Og þú lifir bara einu sinni og það borgar sig að geta litið til baka og brosað.

06. október 2006 klukkan 15:13
Heiđa Sigţórsdóttir
1 athugasemd

Klukkan

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Prófíll

  • Nafn: Heiđa Sigţórsdóttir
  • Stađur: Reykjavík
  • Kyn: kvk
  • Atvinna: Lífefnafrćđingur hjá Decode
  • Hjúskaparstađa: Á eitt stykki kall
  • Um mig: Ég er hress og jákvćđ manneskja sem er alltaf til í eitthvađ skemmtilegt, nema ef ég nenni ţví ekki.....

Innskráningar kubbur

Leikur dagsins

Textareitur

Leit