Við hittumst stelpurnar í gær úr breiðholtsskóla á Thorvaldssen. Stína er á landinu og þá var efnt til hittings sem ég verð að segja var nú ekkert rosa róð mæting. En Monika var löglega afsökuð þar sem hún var upp á fæðingardeild og lítill prins kom í heiminn um 7 í gærkvöld 3 vikum fyrir tíman, en þeim heilsast báðum vel og þetta er myndarstrákur 51 cm þrátt fyrir stuttan tíma í bumbunni. En innilega til hamingju Monika mín og auðvitað Júlli líka.
Það svoldið fyndið að við vorum 6 sem komum í gær og stína greyjið þurfti að hlusta á meðgöngutal allan tíman þar sem við vorum allar óléttar eða nýbúnar, ég og elva, magga og drífa og svo bryndís sem er nýbúin. En hún lifði þetta af og ég vona að hún hætti ekki að hitta okkur eftir þetta en ég skil vel að þetta skuli vera leiðinlegt að sitja í 2-3 tíma og hlusta á eilíft mal um óléttu og barnatengt, ég hefði ekki nennt að sitja undir þessu ó -ólétt.
Enn ein vikan að klárast og með síðustu heilgum í sumar sem hægt er að skella sér í útilegu- við erum reyndar ekki með neitt planað en það er aldrei að vita nema við gerum e-ð skemmtilegt þar sem elmar er nú að klára sumarskólann og það lítur ekki út fyrir að við förum neitt um verslunarmannahelgina.
26. júlí 2007 klukkan 14:54
Heiđa Sigţórsdóttir 2 athugasemdir
Ég er komin með smá vinnuleiða og langar alveg rosalega í frí. Við skötuhjúin vorum að spá í að fara hringin í kringum verslunarmannahlegina en erum ekki gáfaðari en það að við vorum bara fyrst núna að byrja að spá í leigu á fellihýsi, en auðvitað eru þau bókuð með margra mánaða fyrirvara svo ég veit ekki alveg hvað við gerum. Svo ef einhver veit um fellihýsi sem væri hugsanlega laust til leigu þessa helgi endilega látið mig vita :), eða jafnvel bara tjaldvagn hann dugar.
Jæja farinn í kaffi bara nenni ekki að eyða tímanum lengur fyrir framan tölvuna í bili........
24. júlí 2007 klukkan 14:11
Heiđa Sigţórsdóttir Engin athugasemd
Enn ein helgina af sumrinu er nú liðin og þessi var tekin mestmegnis á letinni- enda tími til komin að hlaða batterýin. Fórum jú til Lilju og Lindu í afmæli á föstudagskvöldið og það sama kvöld byrjaði gleymsan að segja til sín, ég já ég sem glemyi nú ekki svo mikilvægum hlutum eins og veskinu mínu, tókst að gleyma því í búð og fattaði það ekki fyrr en seinna um kvöldið og var ekkert smá pirruð út í sjálfa mig. En ég vaknaði kl 9 á laugardagsmorgun dreif mig niður í húsasmiðju til að ná í veskið sem ég treysti á að væri þar því við vorum síðustu kúnnar út, en nei það fannst ekki þar. Þannig ég lokaði kortunum enn pirraðari en fyrr og við vorum tótally peningalaus því elmar gleymdi sínu veski upp á bifröst og þetta var ekkert smá óþægileg tilfinning- engir oeningar og enginn kort. En svo fannst veskið í gær og ég náði í það, það hafði verið sett inn á einhverja skrifstofu og læst þar svo ég fékk veskið með öllu í og var alveg himinglöð. Mér var svo boðið í kökuboð til Elvu vinkonu í tilefni af afmælinu hennar sem er í dag en ég náttúrulega steingleymdi því eins og flestu þessa dagana.
En allavega til hamingju með afmæli Elva mín og Unnur líka
23. júlí 2007 klukkan 10:03
Heiđa Sigţórsdóttir Engin athugasemd
Ég fór á dúndurfréttir með Elmari og tveimur vinum hans frá brifröst þeim Gunna og Ebba í gærkveldi. Og ég verð að segja að það var svo 1500 kr virði sú skemmtum því þeir eru alveg hreint geggjaðir þeir gaurar. Þeir tóku mest megnis Pink floyd og Led Zeppelin ásamt nokkrum Uriah Heep og Deep purple og ég verð að segja að ég bjóst ekki við að þeir væru svona góðir, það eru ekki margir sem ná háu tónunum eins og pétur og svo er Matti líka alveg sér á báti. Gítarleikarinn sem hefur fengið hellings lof utan frá og þykir með þeim betri í dag er líka alveg geggjaður maður fylgdist alveg dolfallinn með þessum frábæru listamönnum allann þann tíma sem þeir spiluðu sem var nú of stutt, 2,5klst því þetta leið eins og 30 mín.
En ég verð að koma því að að það er æði að geta farið svona út og verið án reykingarstybbunnar sem alltaf fylgdi, ég kom heim og þurfti ekki að fara í sturtu til að ná af mér fýlunni. En líklega hefði ég ekki farið ef það hefði verið reykt þarna, þó svo að svitalykt og hvað á maður að segja sú lykt sem fylgir bjórdrykkju var vissulega til staðar en loftræstingin ræður betur við þá lykt svo það böggaði mig ekkert svo mikið. Það sem var aftur á móti mest böggandi var fólkið á næsta borði sem greinilega notaði tækifærið til þess að fá sér í glas á virkum degi og kjaftaði nonstop allan tíman, hvað er með fólk sem mætir á tónleikar og kjaftar allan tíman, akkuru er það ekki bara heima hjá sér og hlustar á tónlist þar fyrst það er ekki komið til að njóta tónleikanna, allavega það fór svoldið í mig en þó ekki það mikið að það hefði áhrif á tónleikana.
jæja það rignir........
19. júlí 2007 klukkan 13:53
Heiđa Sigţórsdóttir 1 athugasemd
Fann þetta inn á B2, hvað er málið með þennan gaur, á þetta að vera sexy eða hvað ég bara spyr því mér finnst þetta eiginlega bara ógeðslegt verð ég að segja
Stefnan verður tekin á vestfirðina um helgina, nánar til tekið á litla bæ Hér er hann, en þetta er víst orðið að safni í dag þetta er svo merkilegt. En allavega það verður gaman að prófa að fara á nýjar slóðir og þar sem hvorki ég né Elmar höfum stigið fæti á vestfirði verður þetta upplifelsi og myndavélin verður með í för.
p.s búin að setja inn nokkrar myndir frá perketlögninni heima - þær eru undir myndir og svo prufumyndir
12. júlí 2007 klukkan 10:41
Heiđa Sigţórsdóttir 2 athugasemdir
Eða svo gott sem en það gegnur alveg rosavel að standsetja íbúðina í holtinu. Þó svo að ég sé óþolinmóð og hefði auðvitað viljað að allt gangi mun hraðar en ég get ekki kvartað og þetta er allt að koma. Helgin mun svo fara í að tæma þá gömlu endanlega og þrífa hátt og látt (púff er ekki nenna þeim parti) þannig það verður ekkert skemmtilegt gert þá helgina. Svo fer næsta helgi í leiðangur á vestfirðina, en það er ættarmót þar hjá pabba fjölskyldu og þar sem ég og elmar höfum ekki stigið fæti á vestfirði ákvaðum við að slá til og skella okkur með. Það var frekar óþægilegt að vakna í morgun því það var bæði kalt og hvasst, gluggatjöldin voru alveg á fullu því ég hef síðustu næstur sofið með opinn gluggan en þar sem veðrið hefur verið svo gott að varla hefur blásið en í morgun var allt á fullu og rok í herberginu, maður er bara orðin svo góðu vanur en nú er greinilega þetta eina sanna íslenska sumarveður komið til okkar. Verð láta koma fram þakkir til strákanna sem hjálpuðu okkur í að parketleggja og flytja um síðustu helgin, þetta gekk svo vel og hratt fyrir sig því þeir unnu allir eins og herforingjar og án þeirra hefði þetta tekið mun lengri tíma. Svo Gústi, Jón og Bjössi takk takk æðislega fyrir hjálpina og auðvitað stelpur líka, Linda, Lilja og Erna, ég var svo búin á því þarna í lokin að ég hef örugglega ekki þakkað fyrir okkur. En ég verð að viðurkenna að ég gerði mér ekki grein fyrir hversu mikil vinna þetta er að flytja og líka erfitt þar sem ég get ekki gert eins mikið sjálf og ég hefði viljað ( sökum bumbubúa) . En þar sem ég gleymdi að hafa með myndavel til að mynda framkvæmdirnar verð ég að treysta á myndir frá Lindu, en ég fæ þær hjá henni við tækifæri og skelli inn. Signý er komin til landsins og kíkti inn á mán til að sjá höllina þó hún væri nú ekki enn gestahæf en það var gaman að sjá hana enda langt síðan síðast. Við ætlum að reyna að stefna á útilegu eða eitthvað skemmtilegt í sumar og ég vona að það verði eitthvað úr því. Svo kom Bryndís með Kötlu í innlit í gær og sú litla stækkar og stækkar og hló og skrýkti af þessu öllu saman- kippti sér ekkert upp við þó pabbi æri að bora á fullu. Jæja nóg í bili af innihaldslitlu þvaðri.......
06. júlí 2007 klukkan 12:14
Heiđa Sigţórsdóttir 2 athugasemdir