29ágúst

prinsinn er orðin ferðafær

Já samkvæmt ljósunni í gær þá er gaurinn bara orðin ready til að koma í heiminn og surprise surprise þá er þetta stór og myndardrengur (skv. ljósunni). En ekki við öðru að búast þar sem við foreldrarnir erum nú enginn smápeð, en ég tek það fram samt að þetta er ekkert tröllabarn bara stór og myndardrengur sem er tilbúin að koma í heiminn hvenær sem er ( því fyrr því betra- því biðin getur verið svo löng).
En það er allt gott að frétta af okkur og snýst orðið allt um litla erfingjann sem við bíðum spennt eftir. Elmar er nú samt að fara í skólan núna á næsta mánudag svo það verður erfitt að horfa á eftir honum síðustu vikurnar þegar mest reynir á og ég þarfnast mest þjóns til að stjana við mig en ég á góða að sem hlaupa í skarðið er ég viss um. Reyndar er ég farinn að vorkenna honum meira en mér því hann þarf að vera einn þarna upp frá og setja sig í námið og vera í hlaupaskónum því maður veit jú aldrei hvenær þetta brestur á. Hann ætlar jú held ég að skella sér í lax um helgina til að veiða björg í bú eða eins og hann segir til að láta stoppa upp á veggin því hann er fullviss um að hann veiði einn stóran í Blöndu.
Jæja best að skella sér úr í frískandi rigninguna og kannski bara fara í gögnu upp bið rauðavatn, enda tími til komin ég hef ekkert labbað þarna um í hverfinu mínu...... þar til  næst......
29. ágúst 2007 klukkan 13:10
Heiða Sigþórsdóttir
2 athugasemdir
24ágúst

Blöðrufiskur


Já ég held að það megi með sönnu líkja mér við  blöðrufisk þessa dagana, því andlitið á mér er orðið svo bólgið af bjúg að ég fer að lítast þessu skrýtna fyrirbæri æ meir, mér til mikillar "gleði" Fýldur, en gleðin er hjá elmari því hann hlær af mér og þá sérstaklega þegar ég leggst á koddan því þá verð ég öll krumpuð með sílikon varir. Ég væri svosöm alveg til í varirnar, hver vill ekki stórar og kissulegar varir en það er restin af þessu sem er að bögga mig, púffý augu og undirhakan. En þetta er víst bara einn af aukaverkunum meðgöngu og ég get svosöm ekki kvartað enda hefur allt gengið í sögu hingað til og þó ég sé ljót og bólgin í einn til tvo mánuði þá er það nú þess virði þegar upp er staðið held ég Tala af sér

adios
24. ágúst 2007 klukkan 11:06
Heiða Sigþórsdóttir
6 athugasemdir
22ágúst

Aðeins 1 mánuður eftir

Já í gær var 21.ágúst sem þýðir að það er aðeins einn mánuður eftir af þessari meðgöngu, það er ef ég geng ekki fram yfir eins og tíðkast víst oft með fyrsta barn. En ég er farin að hlakka svoldið mikið til að fá prinsinn í heiminn og eins líka að klára þesa meðgöngu. Það er satt sem þær segja með að síðsasti mánuðurinn er erfiðastur því hingað til hefur allt gengið eins og í sögu og það er aðeins núna sem þetta er farið að hrjá mann, þyngd og fyrirferð umtalsvert meiri en venjulega svo auðvitað hlýtur maður að finna fyrir því. Hreiðrunarhvötin er líka farin að segja til sín og ég er búin að þvo og raða fötunum hans í skápinn, rúmið er fundið en mútta er að sauma á það dúllerý og ég held að þá sé ég bara orðin nokkuð vel sett, jú auðvitað er bílstóllinn líka á sínum stað. Ég held ég sé svona minimalisti hvað varðar þetta barnadót, því ég nenni ekki að vera með of mikið dót, veit að sumar hafa alveg tapað sér í innkaupum ( það er mikið talað um þetta í meðgönguyoganu) en ég er meira svona less is more týpan hvað þetta varðar. Enda hef ég aðeins keypt  einn galla á gæjann og eina peysu restina hef ég fengið hjá mömmu (sem tapaðir sér gersamlega í byrjun) og svo lánað hjá frænku minni sem mætti í heimsókn með 2 fulla kassa af fötum af sínum litla, þannig skápurinn/kommóðan er orðin alveg stútfull.

En allavega nóg um þetta, við erum að fara út að borða héf í vinnunni í hád. á nýja kínverska staðinn þar sem naustið var, Great wall Development heitir hann víst, en hún Gunna okkar er að halda til kólumbíu til að ná í litla prinsinn þeirra og svo fer hún í eins árs fæðingarorlof og við ætlum að kveðja hana núna með stæl.
22. ágúst 2007 klukkan 10:28
Heiða Sigþórsdóttir
Engin athugasemd
13ágúst

Komin aftur í vinnu eftir smá frí

Ég tók mér rúma viku í frí til að eyða með karlinum þar sem hann er nú loks búin með sumarskólann. Við ætluðum að skella okkur hringinn um verslunarmannahelgina, redda okkur fellihýsi og krúsa hringinn á viku til 10 dögum en þar sem veðrið átti að vera svo leiðinlegt þá slaufuðum við því. En eins og alltaf þá er nú bara mest lítið að marga þessa blessuðu verðurspár okkar íslendinga því veðrið var nú bara alveg ágætt þessa umtöluðu helgi. En við erum búin að eyða þessum frídögum saman í leti skötuhjúinn, varla gert nokkurn skapaðan hlut. Jú við fórum upp í sumarbústaðaland og plöntuðum nokkrum plöntum þannig við erum allavega búin að gera eitthvað við landið, elmar ætlar reyndar að setja niður einhverja staura til að marka landið og svona dúllerý. Og fórum á flúðir á sun. í verlsunarm. helginni og vorum í brekkusöng þar og eyddum kvöldinu og svo keyrði ég heim um nóttina með elmar og Ebba vel skrautlega í aftursætinu Óákveðinn
En annars er allt gott af okkur að frétta, lífið leikur við okkur og við eigum bara rúman mánuð eftir þar til erfinginn mun taka af okkur völdinn.......
13. ágúst 2007 klukkan 10:15
Heiða Sigþórsdóttir
2 athugasemdir

Klukkan

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Prófíll

  • Nafn: Heiða Sigþórsdóttir
  • Staður: Reykjavík
  • Kyn: kvk
  • Atvinna: Lífefnafræðingur hjá Decode
  • Hjúskaparstaða: Á eitt stykki kall
  • Um mig: Ég er hress og jákvæð manneskja sem er alltaf til í eitthvað skemmtilegt, nema ef ég nenni því ekki.....

Innskráningar kubbur

Leikur dagsins

Textareitur

Leit